|
Velkominn/n á vefsíðu Grímnis,
Hér er mögulegt að hljóta flestallar
þær upplýsingar er veita má; til einhvers skilnings
á þessari sérstæðu bardagalist og í
hverslags ímynd - sem formi - hún er iðkuð á
Íslandi um þessar mundir...
...En svo skyldi þá viðhaft samkvæmt
lögmáli og aðferðum lífslistarinnar eins og
framfært er af Dr. Masaaki Hatsumi, Soke eða höfuðpaurs
Bujinkan, í anda hefðarinnar ásamt minningu forvera
hans, Hr. Toshitsugu Takamatsu.
Þó svo persónuleg áhersla og
frelsi skyldi - vitanlega - ríkja í hvívetna og í
góðum/gildum anda Ninjutsu sem athæfis og viðhorfs;
þá er ekki verra að vitna hér - að neðanverðu
- í lögmál það er Hr. Masamitsu Toda (32
stórmeistari Togakure Ryu) færði fram og skyldi það
ráða okkar hegðan og áformum um ókomin ár.
Fyrir hönd Bujinkan,
Diðrik Jón Kristófersson (Yondan, Shidoshi-Ho)
GRUNNLÖGMÁL
BUJINKAN DÓJÓ
1.Vitið að þolinmæði
er einungis augnablik.
2.Vitið að vegur ykkar leiðir til réttlætis.
3.Gleymið hinum miklu freistingum, leti og sjálfselsku.
4.Sorg og sannleikur eru reglur náttúrunnar.
5.Nálgist innri frið með auknum skilning á hinu
óbifanlega hjarta (Fúdoshin), hugsandi hversu sorg og sannleikur
eru tilfinningar reiðinnar.
6.Einbeitið ykkur að trúfestu, og verið undirgefin,
heiðrið náunga ykkar, og haldið leið ykkar með
námi og þjálfun í farveg hermannsins.
|