Á döfinni
Myndir
Upplýsingar
Tenglar
Hafðu samband
Spjall á Huga.is

Þar sem oft vakna spurningar um nauðsynjar og annað slíkt er sumir hverjir telja tilheyrandi, jafnvel ofar öðru, svo að Bujinkan Ninjutsu sé iðkað á sem hentugastan og gæfusamlegastan máta; þá er ekki verra að telja að neðanverðu sitthvað er bera þyrfti - þó lauslega - í huga:

Útbúnaður og áhöld

Þó engin skylda og/eða þrýstingur kveði á, enda byrjendur fullfærir í léttum íþróttafatnaði og þykkum sokkum; þá er mælt með að hver einstaklingur nálgist eftirfarandi - eftir röð og eigin áherslum - svo að þjálfun aukist jafnt áhuga:

1. Æfingagalli (Gi): Oftast nær svartur og/eða grár, en sterkir Karate/Jiu Jitsu gallar (12 oz) eru fáanlegir víðsvegar og þykja hentugri en svokallaðir 'Ninja Gi' sem eiga til að rifna eftir fáein átök.

 

2. Belti: Það er telst til gráðunar að hverju sinni og mikilvægt að fólki njóti þess að fylgjast með eigin árangri, en belti setja engan yfir annan og skyldu einungis teljast sem 'persónuleg' viðmiðun og/eða verðlaun að hálfu kennara.
3. Æfingaskór (Tabi): Hinir undarlegu táskór er - oftast nær - þykkja einkennandi er ninjum bregður fyrir, hvort sem í æfingasölum eða á hvíta tjaldinu, eru til margs nytsamlegir og sér í lagi nauðsynlegir þegar æft er utandyra. Forðast skyldi þó illa smíðaða skó, er einkennast af frönskum rennilás (velcro), og leitast eftir þeim tegundum er framleiddar eru í Japan og/eða þá samkvæmt japönsku sniði. Góðir tabi, hvort sem háir eða lágir, eru vel sólaðir og með góðu gripi til fótfestu ásamt þreifilegra sparkaðferða Ninjutsu, en þesslags kostir láta sérstaklega á sér bera þegar trjá- og veggjaklifur er ástundað.
4. Innanhús æfingaskór/sokkar: Mælt er með þykkum sokkum á æfingum, en Taijutsu bardagaaðferðir byggja oft á fót-troðning og öðru slíku er veldur þeim mun meiri sársauka ef fólk er berfætt. Vitanlega er einnig hægt að nálgast sértilfallna innanhús 'tabi' og má mæla með slíku þó engin nauðsyn krefji slíkra kaupa.

5. Aukaklæðnaður: Þó engin nauðsyn krefji slíkra kaupa; þá getur reynst ágætt að svala þorstanum og nálgast hitt sem þetta, enda af nógu að taka þegar hefðbundinn klæðnaður japanskra bardagalista er íhugaður. Eftirfarandi mætti þó teljast hentugra en hvað annað er til alls kemur, td. japanskir waraji sandalar og/eða kimono sloppar sem þættu - oftast nær - óæskilegur búnaður, hvort sem á æfingum og/eða sýningum.

  • Tekko handhlífar: Ágætt til æfinga og sýninga, en hér má halda síðermum til haga og - jafnvel - geyma kastvopn til brúks.
  • Kyahan legghlífar: Æskilegt til að hnýta upp buxnaskálmar og vernda tabi skó.
  • Obi breiðbelti: Gott til sýninga og/eða frekari ástundunar hins japanska sverðs.
  • Hakama síðbuxur: Ágætt til sýninga og/eða annars slíks þar sem síðbuxurnar flækjast ekki um of...
  • Ghillie felubúningur: Frábært til sýninga og/eða æfinga utandyra þar sem feluleikir krefjast ósjáanlegra athafna.
  • Síðkápa: Ágætt til sýninga og/eða sértilvaldra æfinga þar sem leynimakki er brugðið fyrir.
  • Hringabrynja: Frábært til æfinga og/eða sýninga, en athafnir líkamslistar líða síst þegar æft er í þungum brynjum
  • Yoroi Samurai brynja: Frábært til sýninga og þó ótrúlegt sé; þá hafa margir innan Bujinkan skemmt sér við smíðar á sannfærandi eftirlíkingum sem færa margt nýtt með sér...
...Og margt fleira, en hér skyldi hver sem einn fylgja eigin áhuga og gera það hvað veldur vaxandi þekkingu og skemmtan.

6. Æfingavopn og stafir: Svokölluð Bokken viðartól eru ómissandi til æfinga og aukinnar getu í Bujinkan Ninjutsu, en hér má smíða eða kaupa eftir hentugheitum/möguleikum og þó skyldi athuga að íslensk lög eru nokkuð stíf varðandi svoleiðis hluti, enda gæti það reynst illa séð ef illileg æfingatól væru munduð á almannafæri. Þó skyldi nefna hér hin helstu tól, en flestöll - ef ekki 'öll' - vopn má smíða/eignast í formi öruggra eftirlíkinga sem teldust ólíkleg til mannskaða ef munduð rólega og með forsjálni:

  • Bokken Tanto: Smágerður og eineggja viðardálkur er reynist 'mjög' nytsamur til æfinga.
  • Bokken Shoto (Wakisashi): Nothæf eftirlíking hins japanska stuttsverðs og mjög skemmtilegt til æfinga, jafnan í tvíeyki eða með öðru vopni; þá sérstaklega katana...
  • Bokken Ninjato: Mjög nauðsynlegt í öllum æfingum er halla að Ninjutsu og meðfærni. Hefur sérstaka kosti umfram önnur vopn.
  • Bokken Katana: Dæmigert æfingatól og ómissandi eftir því, enda langmest notað af öllum viðarvopnum og skyldi hver einstaklingur komast yfir - í það minnsta - eitt stykki.
  • Hanbo stuttstafur: Einfaldur í smíðum og nothæfur á æfingum. Eitt það fyrsta sem nemendur eiga til að komast yfir...
  • Rokushakubo langstafur: Notkun pólvopna hefur ætíð heillað marga og er langstafurinn eitt það helsta í þeim flokki, en þjálfun þessa vopns færir nær óendanlega 'nýja' möguleika, skilning og fjölbreytni í hvívetna.
  • Jo göngustafur: Þó minna sé um notkun meðalstafsins, þá liggja hér ýmsar stoðir; þá sérstaklega í nýtingu fjarlægða og felivopna leynistafs (Shikomi Zue).
  • Gúmmí kaststjörnur: Einfaldar í smíðum, þá úr ca 3 til 5 mm þykkum gúmmíplötum og reynast 'Senban Shuriken' nokkuð fljótgerðar, en nýting kastvopna ber margt nytsamlegt og fróðlegt með sér; þá sérstaklega ef vikið er að líkamlegri meðfærni og þolinmæði...

7. Vopn (Bukki): Það væru sjaldséðir einstaklingar innan Bujinkan sem ekki annaðhvort eiga eða 'þrá' einhverskonar vopn er tilheyra okkar aðferðum og þjálfun. Vitanlega skyldi ætíð hafa persónulegt öryggi sem og annarra í huga, en íslensk lög kveða einnig á um eignarhald/notkun slíkra tóla og væru þau að mestu - ef ekki öllu - talin ólögleg í persónulegri eigu.

Væri það þá von og vísa; að Grímnir muni endanlega komast yfir þau tól er teldust að öllu 'nauðsynleg' og hæfandi til iðkunar á Bujinkan Ninjutsu, en hér ber þolinmæði við og vonandi að 'löglegt' vopnabúr félagsins muni ná að vaxa og dafna í samræmi við fjölda félagsmanna.

Þangað til að svo verður og gerist; er fólk hvatt til að hætta ekki á óþarfa slys og/eða refsingar hins opinbera, en einbeita sér þeim mun frekar að öruggari - og nytsamlegri - æfingatólum í ljósi ofanverðs dálks.

Hvað varðar Bujinkan Ninjutsu og vopnabrúk; þá teljast öll mannbær vopn til okkar aðferða og má þar nefna sverð, hnífa, kast- og skotvopn í það helsta, en hefðbundin tól ninjunnar innihalda jafnframt leynigildrur, sprengiefni, eitur, fallbyssur og sprengivörpur svo fleira væri talið. Semsagt; flestallt er telst - yfir höfuð - til vopna og skæruhernaðar, en spurningar um notagildi í skugga áhuga vakna sífellt og má ætíð íhuga hversu langt skyldi gengið í ófullnægjandi leit að allsherjar skilning og þekkingu.

8. Bækur og DVD: Þar sem finna má urmul allan af kennslubókum og myndböndum; þá er varla hjá því komist að rekast á margt sem þætti síðra en hvað annað... Og þó vitanlega skyldi skoða sem flest og draga lærdóm af; þá er - allra helst - mælt með því Bujinkan kennsluefni er Soke sjálfur hefur framfleytt, en það er öruggt, fræðandi og laust við slæma - ávanabindandi - hegðun er getur auðveldlega gert verra heldur en hitt. Hið sama má segja um hin og þessi myndbönd er flæða um netið, en hér skyldi einnig greina á milli þess sem skyldi 'skoða' og þess sem skyldi 'fylgja'.

9. Hlífar/æfingatæki: Þó aðferðir Bujinkan kveði svo að heilsusamlegra sé að nota hvorn annan til 'lifandi' æfinga fremur en að lemja 'dauða' hluti; þá er ekki svo sagt - og sjálfgefið - að tilbreytingar séu slæmar, enda mikilvægara að prófa sem flest og auka á skilning sem getu heldur en að festast í 'heilögum' aðferðum er setja eitt framar öðru.

Í ljósi ofanverðs má mæla með öllum þeim tólum og tækjum er komast má yfir; hvort sem boxhönskum og pokum, makiwara höggstaurum og hlífðarbúnaði til bardaga og glímu osfv... En það er fátt til sem ekki gefst betur af náttúrunnar hendi og - oftast nær - að kostnaðarlausu, en mælt er með að fólki skoði umhverfi sitt gaumgæfilega áður en dýr útbúnaður er verslaður umfram öðru slíku er þætti nauðsynlegra.

Viðmót

Fátt er jafn mikilvægt til æfinga, í Bujinkan Ninjutsu, en rétt viðmót svo að vinsamlegur og þroskandi andi gerist ríkjandi umfram þráleita samkeppni og endalausan misjöfnuð. Þó farið sé út í slíka sálma hér á 'Ákvæði og Gráðun'; þá er ekki verra að dýfa árinni rétt aðeins og gera lesendum ljóst hvernig fara skuli að og þarmeð; gæta þess að allir haldist sáttir - og óskemmdir - á greiðri leið til sjálfsbetrunar, en hér hafa margir innan Vestræna Bujinkan farið afvega og þarafleiðandi tapað áttum þá er æðruleysi og gjörvileiki grönduðust í stolti, yfirgang og íhaldssemi.

1. Vinsamlegheit og rósemi: Flestallir eru velkomnir í hús Grímnis og skyldi ætíð tekið á móti nýliðum með þeirri heilshugar vinsemd og hjálpfýsni er Grímnismenn sýna hvoröðrum; þó - vitanlega - með aðgát og varúð í fyrirrúmi þar sem oft bregður fyrir kappsemi, ásamt reynsluleysi, hjá þeim er ekki þekkja betur til. Þannig gerast slysin; að einn eða tveir hlaupa á sig og reyna með sér, taka óþarfa áhættur og fyrr en varir, valda skaða með óstjórnlegum afleiðingum. Svo að ekki fari svo og að félagið haldist á greiðri leið sem slysa- og skaðalaus hópur áhugasamra vina; þá mætti íhuga eftirfarandi:

  • Skyldi forðast kappsemi og nota td. frjálsar glímur (Randori/Kumite) sem leið til að fylgja þeim áttum er gefast gegnum bardaga. Það er mikilvægara að kynnast undankomuleiðum með tapi heldur en að streytast endalaust á móti!!!
  • Mikilvægt er að halda vægum hraða gegnum flæði (Nagare) og finna leiðir til að hægja á ofsahröðum andstæðing frekar en að falla í þá gryfju að auka eigin aðgöngu, valda spennu og missa sjónar á því sem skiptir máli.
  • Fólk skyldi ætíð miðla upplýsingum og veita/taka við athugasemdum með opnum huga, hjálpa til og bæta hvort annað af heilshugar fórnfýsi. Hver sem einn skiptir máli og hefur sína kosti sem galla, en Bujinkan Ninjutsu er gefandi athæfi sem skyldi - framar öðru - skemmtilegt í alla staði.

Áhugasemi og forvitni: Soke Hatsumi hefur oft á tíðum farið fögrum orðum um hinn svokallaða barnshug og hversu opið - sakleysislegt?!? - viðmót, laust við efasemdir og staðla, skyldi ofar öllu þegar Bujinkan Ninjutsu er numið. Mælt er með að fólk láti ekkert standa í vegi og sleppi lausu því er veldur stirðleika og festu, en hvorutveggja helst einungis að eigin ráði og tefur huglægan sem líkamlegan vöxt. Eftirfarandi ætti að veita einhverju ljósi á þessi mál:

  • Það er lofsvert að láta ljós sitt skína og festast ekki í stað, heldur leita ótrautt áfram í þeirri vitneskju að aldrei sé komið á leiðarenda. 'Svalið þorsta en hungrið án afláts eftir sæði Bujinkan' og skyldi spyrja látlaust, lesa, sjá og heyra, prófa og öðlast ný svör ásamt nýjum aðferðum. Það sem virkar í dag getur reynst úrelt á morgun þar sem veröldin vex og tekur breytingum rétt eins og hver einstaklingur á eigin vísu.
  • Það er oft sjáanlegur munur á þeim sem æfa einungis samkvæmt formi og þeim sem æfa 'af lífi og sál' með formið til hliðsjónar!!!
  • Það er sönn list að láta Taijutsu flæða án efasemda og geta bætt sig stanslaust; þó eftir eigin getu og möguleikum, en tíminn mun sanna - á eigin vísu - hvað hentar og hvað ekki, frekar en hvað fólk getur og getur ekki...

Þolinmæði og þrautseigja: Í anda lögmáls Toda og innan ramma eins mikilvægasta þáttar þess; skyldi íhuga hið lifandi sverðshjarta (Shinobi) og undirstöðuatriði þjálfunar ásamt lífsmunstri því er liggur að Ninpo. Hér liggur - oft - kötturinn grafinn og jafnframt sá skilningur er leiðir sanna iðkendur áfram þar sem aðrir staðna:

  • Eðlislægur síbreytileiki felst í því að forðast sjálfsblekkingu og stjórnsemi; að muna að ekki er allt sem sýnist og að geta tekið því sem fyrir ber með 'sjálfsfórn' og án þess að þurfa að sigra.
  • Að sleppa líkamlegum styrk ásamt stífleika og finna öryggi gegnum 'Fudoshin' er að lifa með rósemi og þolinmæði í huga sem og hjarta. Hér er kúnstin sú; að geta gefið sig og gerst meðfærilegur, horfa í grunninn (tækni) og láta hæfileika koma rólega frekar en að hjakka endalaust í sama hjólfari...
  • Virkni er alltaf persónuleg og eftir settum staðháttum, þ.á.m. reglum og öðru slíku er dregur úr sönnum leiðum til sjálfsbjargar, en hér mun ninjan ætíð fara eftir eigin háttum fremur en því reglubundna munstri er hentar öðrum.

Hreysti og líkamleg uppbygging

Líkamsræktunaraðferðir Junan Taiso eru fáum ókunnuglegar innan Bujinkan, en mörgu ber við og bardagaaðferðir Ninjutsu einungis smávægilegur þáttur þegar á heildina er litið. Landafræði og allskyns þekking á staðháttum ásamt veðurfari, náttúrufræði og þekking á jurtum, plöntum og dýrum ásamt sérstöku mataræði, tilbrigðum til lækninga og heilsu osfv. Af nógu er að taka og einungis spurning hvert hugurinn leitar að hverju sinni, en þó við leggjum hér flestallt annað til hliðar en það sem nemur 'lífsspursmáli' og öðru tilheyrandi stríðslistinni sjálfri eins og hún þekkist best; þá þykir vænlegt að staldra við og huga að því er telst til líkamlegrar uppbyggingar til bættra aðferða og möguleika.

Styrkur: Það er gott að reynast sterkur fyrir og geta valdið sér - og öðrum - án sjáanlegra erfiðleika, en svo getur þó farið að styrkur bregðist þá er á reynir og þá hentugra að hafa öðlast líkamlega hæfni ásamt samsettum styrk Taijutsu, í líkama fremur en einungis útlimum. Má hafa eftirfarandi í huga þegar uppbyggjandi styrkæfingar eru til taks:

  • Forðist að lyfta lóðum með spennu, en einblínið að eigin þyngd til æfinga; þá sérstaklega þegar útlimir eru æfðir, en lóð geta reynst hentug til uppbyggingar líkama á hreyfingu, td. lágt göngulag með háreyst lóð.
  • Gætið þess að halda beinu baki og sterkri stöðu (Kamae) til að forðast meiðsli. Fylgist vel með ummerkjum fyrrverandi meiðsla og vinnið aldrei gegn sársauka.
  • Teygið vel með styrkæfingum og haldið vöðvum á hreyfingu. Haldið flæði gegnum æfingar og breytið til rólega...
  • Drekkið minnst tvo lítra af vatni á dag, æfið sem oftast, en gerið sem minnst svo að skemmtunin haldist.
  • Notið hverja æfingu til að ná sem flestu í samhæfingu líkamlegs styrks, td. armbeygjur: Haldið beinu baki og horfið framfyrir ykkur, notið tær til að halda fótleggjum uppi og færið brjóstkassa sem næst jörðu án fullrar snertingar. Skiptið úr lófum, yfir í hnúa og fingur að vild. Prófið jafnvel með hreyfingu frammávið/afturábak svo að stífleiki fjarlægist.

Þol: Það er leitt að lýjast; hvort sem á æfingum eða í daglegu lífi, enda líkamlegt og andlegt þol með mikilvægari þáttum í lífi sérhvers einstaklings eins og fæstum er ágreint um. Þó vitanlega skyldi þekkja sín takmörk vel og geta hegðað sér samkvæmt því; þá er ágætt að geta beitt sér - með neðanvert í huga - svo að gott og langvarandi þol myndist rólega frekar en óstöðug orka sem leiðir - gegnum sprengikraft - til örvilnunar/örmögnunar:

  • Haldið ykkur á stöðugri hreyfingu (Nagare) og flæðið rólega - hljóðlega - úr einu í annað. Notið Taijutsu og haldið hægum gangi þegar þreyta gerir vart við sig.
  • Gangið, klifrið, syndið og/eða hlaupið reglulega, en gerið sem minnst og haldið ykkur við það...
  • Haldið stöðugum andardrætti og andið djúpt, en þó rólega og fyllið lungun. Íhugið mismunandi öndunaraðferðir og áhrif, en hér má finna samfelldan hrynjanda og hegða sér í fullu samræmi við sig sjálfan, andstæðing og umhverfi.
  • Lítilvægar hreyfingar eru tíma- og orku-sparnaður.
  • Notið aðferðir 'Taihenjutsu Ukemi Gata' til að öðlast eðlilega getu umfram þol, en hér skyldi engin munur á veltum, stökkum, fótgangi og öðrum tilburðum, td. úr náttúrulegri stöðu (Shizen No Kamae) og mögulega með vopn við hönd: Tobi (stökk eða svifstökk) + Ukemi (fall) + Tobi (stökk eða svifstökk) + Kaiten (velta) + Moguri Gedan No Kamae (fall í lága stöðu) + Kaiten (velta) + Tobi (stökk eða svifstökk) + Oten/Kuten (handahlaup/hringstökk) + Moguri Kaiten (fallvelta). Finnið jafnframt aðrar stöður (Kamae) hér og látið þær myndast náttúrulega ásamt árásum...

Teygjanleiki: Helstu aðferðir Junan Taiso hyggja að eðlislægum og langvarandi - hversdagslegum - teygjanleika frekar en sérstökum teygjum/upphitunum til æfinga og aukinnar getu við sérstakar 'skapaðar' aðstæður. Má - tildæmis - finna margt nytsamlegt í valinkunnum Jóga-aðferðum og iðka í samræmi við eftirfarandi heilræði:

  • Forðist nudd og hjakk í teygjum, en haldið vænlega og samræmið öndun og talningu (td. að '10').
  • Forðist sársauka og - mögulegt - slit á liðböndum, en 'skjálfta' í útlimum má fjarlægja með slökun og rósamri öndun.
  • Teygið jafnt standandi sem sitjandi og liggjandi. Hugið að útlimum og hálsi ásamt liðamótum...
  • Haldið hreyfingu og rólegu flæði gegnum teygjuæfingar, skiptið úr einu og yfir í annað, fjarlægið spennu og hik.
  • Notið teygjur fyrir, gegnum og eftir æfingar; hvortsem reglubundnar þol-/styrkæfingar og/eða á Grímnisæfingum, ef einungis til að bragðbæta og leysa upp það sem fyrir liggur. Eftirfarandi 'standæfing' gefur gott dæmi um slíkt: Byrjið í náttúrulegri stöðu (Shizen No Kamae) - Beygið hné lítið eitt og teygið eins langt aftur fyrir ykkur og mögulegt er, jafnvel með hendur í jörðu ef svo reynist mögulegt. Látið sjón fylgja höndum í góðri sveigju, haldið og andið að '10' - Til baka í réttstöðu og með fætur beina, teygið ykkur áfram og leggið lófa í jörðu (andið að '10') - Til baka í Shizen No Kamae, teygið ykkur upp eins langt og þið komist án þess að færast upp á tær (andið að '10') - Til baka í réttstöðu og endurtakið að vild...

Hraði: Þar sem aðferðir Bujinkan byggja á rólegum og eðlislægum viðbrögðum undanskyldum hraða og ofsa; þá er ekki verra að leggja hér leiðir svo að fólk finni sig einmitt á því grundvallarsviði og geti athafnað sig þeim mun betur; hvort sem á æfingum eða við þær hversdagslegu aðstæður sem ninjur þurfa að búa við:

  • Mundið þolinmæði gegn hraða og látið árásir - jafnvel - koma ykkur á óvart, en jöfn og eðlislæg viðbrögð - ásamt tækni - skyldu þjálfuð til undankomu án hugsunar og/eða fyrirhugaðra áætlana.
  • Notið eigin hreyfingar og hraðabreytingar til að annaðhvort róa andstæðing og/eða koma honum úr jafnvægi.
  • Haldið slökun í útlimum og notið líkamsbeitingar Taijutsu til að fleyta höggum/spörkum án þess að stífir vöðvar hægi á. Með þessu munu árásir berast mun hraðar og - allra helst - 'frjálslega'.
  • Æfið undankomuaðferðir, áttir og líkamsbeitingar gegn hröðum árásum af ýmsu tagi, án þess að einblína á gagnárásir eða bardagaaðferðir og finnið hvað hentar best.
  • Nýtið aðferðir Taihenjutsu Ukemi Gata - ásamt flæði - til að öðlast svífandi hreyfigetu sem mun oft sýnast öðrum hröð, en hér má æfa eftirfarandi til slíks: Byrjið í stöðu að eigin vali, en nýtið samhnýtta eiginleika 'Jumonji No Kamae' og 'Hira Ichimonji No Kamae' til stökks. Stökkvið frjálslega til allra átta, upp og niður, með sveiflukenndum mjaðmahreyfingum og haldið ykkur samfleytt á flugi. Skiptið einni úr vinstri stöðum (Hidari) og yfir í hægri (Migi) á flugi. Einblínið á rósemi og jafnan hraða, setjið jafnvel inn högg og/eða spörk samkvæmt aðferðum 'Hoken Juroppo' og prófið háar sem lágar stöðubeitingar. Með þessu má beisla náttúrulegan og óhindraðan hraða til hvers er koma skal...

Samræmi: Sameining líkama og anda án hugsunar (Munen Muso) eru - að hluta til - afleiðingar jöfnunar eiginleika og getu, enda skyldi leitast við að ná líkamlegu jafnvægi þols, styrks og liðleika sérhverjum til aukinnar framfærslu/framvindu. Mjúkleg meðfærni er þó mikilvægust, en svo leiðir til óséðra leiða undankomu og þarmeð til lífs og sjálfsbjargar. Má segja hversu 'Þolinmæði þrautir vinnur allar' og hafa það spakmæli í huga er eftirfarandi er athugað:

  • Verið létt á fæti og reiðubúin til allra átta hreyfinga (jafnvel til stökks og/eða falls); þó með þreifanlegri staðfestu og góðu jafnvægi með lausum - þó sterkum - hnjám.
  • Jafnvígi felst í samstilltri getu og eiginleikum; hvort sem teygjanleika, þoli og/eða styrkleika. Verið jafnbúin til undankomu og árása, hnefahöggs og sparks, til allra átta samtímis...
  • Veitið árásir/gagnárásir frjálslega með vægum styrk (10 til 25% höggþunga) og gætið þess að tapa ekki jafnvægi, en haldið sífellt möguleikum til hreyfinga og áframhalds.
  • Prófið aðferðir Taihenjutsu við mismunandi aðstæður, td. í sundi, á ís, möl og malbiki, innan um húsgögn og önnur þrengsli, upp/niður tröppur etc... og jafnvel undir álagi af ýmsu tagi svosem; að loknu hlaupi og/eða með aukaþunga í formi klæðnaðar, mögulega í heljartaki andstæðings og við aðrar 'vonlausar' aðstæður. Látið líkama vinna rólega og óháð hugsunum...
  • Lærið að beita öllum aðferðum Ninjutsu án þess að gera þær sérstaklega, með jöfnum hraða (Nagare) og með góðri yfirsýn, en þetta má nálgast með eftirfarandi æfingum: (a) Hópæfing: Notið þægilegt, þó aðþrengilegt rými (helst með vegg/veggjum) og gangið um rólega - Setja má inn hindranir og húsgögn eftir hentugheitum - Notið aðferðir 'Shinobi Aruki' fótaburða (svosem 'Yoko Aruki' hliðarskref) þegar við á og gangið sem næst hvoröðrum - Finnið augnablik til árása (td. þegar fórnarlamb sér ekki til) og veitið högg/spark/kast rólega, en aðfarirnar skyldu koma fórnarlambi (Uke) úr jafnvægi og - mögulega - fella hann - Uke skyldi nota meðfærni og fylgja með rólega, en nýta aðferðir Taihenjutsu til undankomu (td. með veltu og/eða stökki) og áframhaldandi göngu með jöfnum, óbreyttum hraða - Mikilvægt er að allir stundi athæfið samtímis og sýni jafnt rósemi sem aðgát.

    (b) Paræfing: Þolandi (Uke) veitir ca. 10 mismunandi árásir og Tori (gerandi) nær honum niður með lás og/eða kasti að lokinni hverri árás - Uke stendur jafnan upp (aðferðir Taihenjutsu Ukemi Gata) og heldur árásum gangandi með jöfnum hraða (Nagare) þangað til að hlutverkaskipti eiga sér stað að lokinni tíundu atlögu eða svo... - Mikilvægt er að Tori fari rólega að, nemi vel við og haldi léttri stjórn á Uke á meðan óförum stendur, en hér skyldi halda jafnvægi og líkamlegu viðnámi þó svo að Uke liggi kylliflatur. NB: Mætti segja að Tori haldi við gegnum jafnvægistöku og - mögulega - veltu eða fall; hjálpi svo Uke á fætur, bíði lítið eitt árásar og grandi honum á ný!!!

    (c) Sjálfsdæmi: Hér lærist að láta sig velta/falla frekar en að fremja slíkt sem fyrirhugaða verknaði, en skyldi þá ganga um með stuttlegum skrefum 'Shinobi Aruki' aðferða og láta sig detta með Moguri tilfinningu (andfall/uppgjöf) - Látið líkama finna eigin leiðir til uppstigningar og einblínið á jafnan hraða gegnum atburðinn í heild sinn

Fáein góð - og síendurtekin - ráð...

Til óbrigðuls samdráttar og frekari heilræða; þá skyldu eftirfarandi 'ráðleggingar' ætíð í huga hvers og eins, en hér er ýmsu huglægu brugðið úr ýmsum hornum og af vörum þeirra er þekkja einhvers til:

  • Horfið djúpt og í hvert smáatriði. Íhugið ávallt fótaburð, jafnvægi, áttir og fjarlægðir. Öðlist skilning umfram efasemdir...
  • Lærið og gleymið!!!
  • Til árása: Hvert hnefahögg er grip og hvert skref er spark!!!
  • Æfið stöður og grunntækni í þaula og án afláts. Finnið rósemi og öryggi, jafnvægi og - umfram allt - traust gegnum 'Fudoshin'!!!
  • Leitið og fjarlægið öll merki um stirð- og stífleika!!!
  • Beint bak, sveigjanlegar mjaðmir og sterk hné. Taijutsu er hreyfing!!!
  • Hik er dauði!!!
  • Sjálfsgagnrýni er forveri sjálfsbetrunar!!!
  • Lærið að tapa!!!
  • Forðist stjórnsemi og öryggi með lásabeitingu og köstum, en nemið - heldur - við og verið tilbúin til samsvarandi breytinga.
  • Lærið að nýta það sem gefst (slys?!?) og finnið hvar högg/spörk lenda sjálfrátt.
  • Kýlið/höggvið til að eyða jafnvægi og öryggi, sparkið þegar andstæðingur er ójafn/afkáranlegur (td. á flugi eftir kast).
  • Íhugið 'Kukan' (tómið) og veikleika í jafnvægi sem umhverfi andstæðings.
  • Undankoma er ósjálfráð, en árás fyrirhuguð.
  • Finnið, lærið og þekkið stöður (Kamae), hvar/hvernig þær myndast og hversu má nýta án þess að gefa nokkuð í ljós.
  • Notið stöðubeitingar og fótaburð (Shinobi Aruki) til að æfa hversdagslega og nemið viðbrögð annarra - manna og dýra - gegn smávægilegum breytingum.
  • Lærið að nema allt innan sjónsviðs án þess að einblína sérstaklega á eitt eða annað.
  • Látið eigin árásir koma ykkur á óvart og - með því - brjótið niður skilning andstæðings.
  • Góður Uke eykur á útlit Tori!!!
  • Verið mjúk, áþreifanleg og miskunarlaus.
  • Hvert spark er kast!!!
  • Ofbeldi er erfiðisvinna.
  • Góður kennari verðskuldar færan nemanda.
  • Stundið Mutodori Gata reglulega: Sjálfsfórn er vís leið til sigurs!!!
  • Sutemi: Sá sem er dauður hefur engu að tapa!!!
  • Fleygar setningar (Okuden?!?) eru gagnslausar án innsæis og forvitni...
  • Íhugið veikleika Bujinkan og verið meðvituð um 'augnabliksmun' lífs og dauða!!!

...Og umfram allt: Góða skemmtun!!!

Vitanlega - og þó margt sé talið hér að ofan - mun hver sem einn finna eigin leiðir þegar til alls kemur, en Bujinkan telur gífurlegan hóp áhugasamra og eftir því; mismunandi aðferðir er teljast mikilvægar að hverju sinni, enda má segja að hvert hús (Dójó) sé sérstakt þó vitanlega beri að horfa til Japansstranda er fyrirmynda er leitað.
© 2007 Nekron-art, Grímnir Dójó, Bujinkan og Usagi Dojo Rotterdam. Öll réttindi áskilin