|
Það þætti til hæfis
að útskýra að einhverju leyti; uppsetningu/samsetningu
á merki Grímnis til frekari þekkingar
áhugasamra:
GRÍMNISSKJÖLDUR
Merkið sjálft
er samansett úr þremur einingum er þykja
ágætar sem stoðir félagsins, en talan
'3' er einnig mikilvæg innan þjálfunnar
sem og lífsstíls Ninpo. Þar af leiðandi;
er Grímnisskjöldur best auðskilinn með
eftirfarandi útskýringar í huga:
1. NIN
kanji: Hinn japanski stafur (kanji) 'Nin' þýðir
þolinmæði og/eða betur ákosið
''þrautseigju'', en það væri þá
grunnur Budo Taijutsu og undirstaða allrar þjálfunnar
í Bujinkan. Samfara því mætti þá
þýða eftirfarandi til fullnustu og skilnings
þeirra er hafa barist - lifað og dáið
- með þeim aðferðum er við rannsökum,
lærum og notum:
Nin (þrautseigja)
+ Ja (maður) = Ninja eða 'þrautseigur maður'.
Mætti jafnvel teygja og mynda orðið 'Píslarvottur'...
Ninjutsu = List
þrautseigju eða 'Þollist'...
Ninpo = Vegur þrautseigju.
2.
Kuji Kiri:
Hið óhefta fljúgandi sverð ('Happo Hikenjutsu'
eða 'átta leiðir leynisverðs') er gengur
til allra átta; skyldi formað í hringnum
(8) ásamt 'Tsuki' kviðstungu (+1) og þarmeð
færa tölspekina nær heildarmyndinni ('Ku'
- eða '9' - getur einnig þýtt 'tóm'
og þarmeð '0', en þaðan liggja allar leiðir
óheftar...).
Ef ofanvert er
íhugað; þá fæðist skilningur
á óendanlegri hringrás flæðis
(Nagare), en þá er hringurinn í merki
Grímnis ákjósanlegur og látinn
valda orðunum: ''Bujinkan Ísland Budo Taijutsu''
eða: ''Bardagaleiðir Líkamslistar (Budo Taijutsu)
Æfingarsalar Hergoðsins (Bujinkan) á Íslandi''
3. Grímnir:
Sem Goð hernaðar, fjölkynngni og ómældrar
visku skyldi Óðinn reynast sú höfuðímynd
er sæti ofarlega í huga, en sá er talinn
klókur sem kröftugur og sífellt utan þess
er auðskilið er. Hinn norræni alfaðir sætir
einnig þremur fórnum (sjálfsfórnum);
þá tveimur sér til framfærslu og
aukinnar visku, ásamt einni til endurfæðingar
heims (Ragnarök) og liggja þannskonar leiðir
þeim mun nær helstu eiginleikum Ninjutsu, en okkar
tilburðir skyldu ætíð duldir og magnaðir
hinu óskiljanlega.
Þeim mun
áhugaverðari - og hér til sögu - eru
Grímnismál, en þar bregður Óðin
sér í dulargervi (Hensojutsu) og heimsækir
Geirröð konung, en sá fagnar gesti með
pyntingum (laumuspil og aðfarir Friggjar: Kunoichi!?!)
og er Óðin situr fastur milli tveggja elda; þá
segir hann til sín og verður konungi svo við,
að hann hleypur upp með fagnaðarlátum og
við það steypist á eigið sverð
('Mutodori' eða 'Shinken Shiraha Dori') og gerist samstundis
bráðkvaddur...
Ofanverð saga
- til fullgerðar þrenningu - gæti talist nokkuð
nær því er telja má 'huglæga'
undirstöðu þjálfunar í Bujinkan
Ninjutsu og þarmeð nafn - ásamt merki- félagsins
tilvalið til sameiningar, þ.á.m. austrænna
og norænna hefða, speki og aðferða til bóta
(stefnu) hvers er nemur...
|