|
Hér - á þessari síðu
- má líta lög og reglugerðir Bujinkan,
ásamt - þeim mun persónulegri - leiðbeiningum
sem og reglum félagsins. Síðast en ekki
síst; má einnig finna hér frekari útskýringar
um gráðanir og beltisskipan í Bujinkan.
GRÍMNISLÖG
Utan þess
er finnst á forsíðu Grímnis og síst
ekki þeirra ákvæða Bujinkan er fylgja
hér að neðanverðu; þá er mikilvægt
að nefna hér nokkur atriði sem skyldu höfð
við - og til hliðsjónar - svo að félagið
varðveitist og haldi réttilegri, óbeinni
stefnu um ókomin ár. Þessar greinar skyldu
ekki teljast sem skilyrði, heldur frekar sem leiðbeiningar
til velsæmdar félags sem og meðlima...:
- Okkar er lífsins
vegur (Budo). Lærið, vaxið hiklaust, breytist
og nemið allt áhugavert. Prófið hið
slæma og haldið hinu góða.
- Allir meðlimir
skyldu jafningjar og aðstoða hvorn annan með
- gegnum - þjálfun á Bujinkan Budo Taijutsu.
Látið 'gráður' aldrei setja einn yfir
annan og haldið einungis þeim hefðum er valda
vellíðan hvers og eins...
- Ein þrjú
mikilvægustu atriði þjálfunar; þá
innan tvísteypts ramma 'Taijutsu' (líkamslistar)
og 'Taihenjutsu' (hins síbreytilega líkama)
eru: Ukemi (viðnám), Nagare (flæði)
og 'Fudoshin' (hið óbifanlega hjarta). Lærið
þessi hugtök vel og nemið þau innan
þjálfunar sem og í daglegu lífi.
- Lærið
að nota það sem þið öðlist
gegnum æfingar, en aldrei til illvirkja. Hver sá
sem fremur óverknað, annaðhvort á
eigin vegum og/eða í nafni félagsins,
er með öllu óheimilt að ástunda
Ninjutsu undir fána Bujinkan og skyldi meinað
aðgang að æfingasal... Munið að -
og samkvæmt sögu og hefðum - þá
er það löstur að þurfa að berjast
og ekki til mannsæmdar. Hver sá er telst 'ninja'
skyldi ávallt finna hentugri - öruggari - leiðir
til sjálfsbjargar og nota bardagaaðferðir
einungis sem síðasta úrræði...
- Budo er ekki
íþrótt til keppni og/eða samanburðar.
Hér keppist hver gegn - með - sér sjálfum
og engum öðrum. Hjálpist frekar að og
munið að Taijutsu er einstaklingsbundið; öngvir
tveir eru eins, hvort sem líkamlega og/eða hreyfilega
séð! Budo er ekki spurning um getu, heldur vilja
og þeir sem ekki meðtaka það; munu ekki
haldast við í þessari bardagalist. Finna
má - og íhuga - 3 tegundir af 'vígförum'
(Budoka): Þá er vilja styrkjast, þá
sem girnast tækni og kunnáttu... og svo þá
er sækjast eftir góðu hjarta!!!
Eftirfarandi er - tiltölulega - bein
þýðing reglugerðar Honbu Dojo í
Japan og væri hún best álitinn sem slík,
en hér felst boðskapur Soke til iðkenda um
heim allan:
Leiðbeiningar
til þáttöku í Bujinkan
1. Bujinkan samtökin
skulu opin einungis þeim er samþykkja og halda
reglugerð þeirra. Þeim sem gera það
ekki skal neitaður aðgangur. Þá sérstaklega:
Aðeins þeir sem hafa lesið og samþykkst
þessum lögum geta átt þáttöku.
2. Aðeins þeir
er geta haldið sannri þolinmæði, sjálfsstjórn
og áhugasemi skulu eiga þáttöku.
Skila þarf allrahliða heilbrigðisvottorði
læknis. Þá sérstaklega: Þeir
einstaklingar sem þjást af geðsýki,
eiturlyfjaáneyslu, eða andlegum óstöðugleika
skyldu eigi hljóta aðgang. Nauðsyn fyrrnefnds
skjals kemur til vegna ákveðinna einstaklinga sem
gætu reynst hættulegir öðrum, til dæmis;
þeir sem haldnir eru smitsjúkdómum eða
veikindum, einstaklingar með greinda skerðingu á
persónuleika eða heilsu, og svo þeir sem
vantar nauðsynlega sjálfsstjórn. Umsækjendur
sem eru á sakaskrá lögreglu fá ekki
aðild. Illvirkjar, þ.e.a.s. þeir sem fremja
glæpi, ásamt þeim sem búa í
Japan og brjóta landlæg lög skal varnaður
aðgangur.
3. Þeir sem
halda ekki reglugerðir Bujinkan, hvort sem iðkendur
eða meðlimir í félagi, með framkvæmdum
á óvirðingarsömum og fráhrindandi
verknuðum skal vísað frá. Þar
til nú, hefur Bujinkan verið opið stórum
hópi fólks sem kom til Japan. Þar á
meðal, og því miður, voru þeir
sem frömdu óskemmtilega drykkfellda verknaði,
hinir geðveiku, og svo vandræðaskapararnir sem
huguðu aðeins um sjálfa sig og náðu
ekki að sjá hvernig aðgerðir þeirra
gátu haft óbein áhrif á aðra.
Með aðferðum sínum, afneitaði þannig
fólk hefðbundnu og réttlátu hjarta
Bujinkan. Frá og með þessum degi, skal allt
þannskonar fólk rekið á braut.
4. Hvað varðar
slys sem gerast á æfingum (hvort sem innan eða
utan dójó), skyldi enginn valda Bujinkan vandræðum.
Þetta er mjög mikilvægt atriði. Þeir
sem eru óviljugir til persónulegrar ábyrgðar
á slysum þeim sem verða við Bujinkan
þjálfun skal meinaður aðgangur. Endurtekið
til staðfestingar, Bujinkan mun ekki axla neina ábyrgð
á óhöppum sem gerast á tímum
æfinga, óskipað staðsetningu.
5. Allir þeir
sem ganga í Bujinkan samtökin skulu hljóta
árlegt félagsskírteini. Þetta kort
varðveitir ekki einungis heiður Bujinkan meðlima,
það bendir til að hver og einn sé hluti
af mun stærri heild - hvers meðlimir koma saman
með hjarta vígfara til að bæta sig með
þjálfun og vinskap. Það sýnir
og sannar sæmd hermannsins, og staðfestir jafnt
trúfestu og bræðrabönd.
6. Hefð Bujinkan
sannkallar náttúru og alheimslög mannlegs
eðlis, og er meðfær um allt það er
flæðir náttúrulega milli tveggja eftirfarandi
þátta:
''Leyndarlögmál
líkamslistar (Taijutsu) er að þekkja grundvöll
friðar.''
''Að draga
lærdóm er leiðin að hinu óbifanlega
hjarta (Fúdoshin)''
7. Nýverið,
hefur Bujinkan orðið virkilega alþjóðlegt
fyrirbæri. Ekki ósvipað því
að það skuli vera til mismunandi tímasvæði,
þá eru til mismunandi brestir milli fólks
og þjóða þessa heims. Við verðum
að virða hvort annað og berjast til að komast
hjá slíkum vandamálum. Við verðum
að setja hjarta hermannsins fyrst, vinna saman að
sjálfsbetrun og til bóta Bujinkan.
8. Þeim sem
halda ekki ofangreint lögmál skal umsvifalaust
vísað úr Bujinkan samtökunum.
Dr. Masaaki Hatsumi - Soke
Hér skyldu svo - til samanburðar - endurtekin
orð þau er birtast á forsíðu:
Dójó
lögmál (Shinryuken Masamitsu Toda - Anno. 1891)
1.Vitið
að þolinmæði er einungis augnablik.
2.Vitið að vegur ykkar leiðir til réttlætis.
3.Gleymið hinum miklu freistingum, leti og sjálfselsku.
4.Sorg og sannleikur eru reglur náttúrunnar.
5.Nálgist innri frið með auknum skilning á
hinu óbifanlega hjarta (Fúdoshin), hugsandi
hversu sorg og sannleikur eru tilfinningar reiðinnar.
6.Einbeitið ykkur að trúfestu, og verið
undirgefin, heiðrið náunga ykkar, og haldið
leið ykkar með námi og þjálfun
í farveg hermannsins.
GRÍMNISMÁL
Svona í
lokin og sem léttan - auðmeltanlegan - eftirmála;
þá þætti tilheyrandi að undirstrika
stefnu félagsins eins og hún þætti
best, en hún væri ákjósanlega sú:
...Að koma
upp góðu félagi sem vert er að sækja
og tengjast. Halda gott hús (Dojo), með öllu
tilheyrandi og nauðsynlegu, þar sem allir eru velkomnir
að vera með og slást í glaðværan
og velviljaðan hóp áhugasamra...
...Að valda
eðlilegri útbreiðslu á þessari
sérstæðu bardagalist (Bujinkan Ninjutsu)
og auka þekkingu - sem kunnáttu - hvers einstaklings
er hana sækir.
...Að grafa
undan ofsatrú og fáfræði, ásamt
slæmu - þó víkjandi - orðspori
er margvíslegir loddarar og prettarar hafa unnið
til með svikum og falsháttum.
...Að veita
öllum straumum til góðs í íslensku
samfélagi - þ.á.m. annara bardagalista
og íþrótta - og með því
stefna landi og þjóð frammávið
sem sannri perlu; hvort sem innan Bujinkan eða annarstaðar.
...Að bæta
list, félag og nemanda að jöfnu með opnum
huga og tilheyrandi lítilæti. Sem 'Lifandi List'
skyldi Ninjutsu vaxa, dafna og þróast samfara
tíð og tíma heldur en að staðna,
festast og deyja.
Fyrir hönd
Bujinkan á Íslandi,
Diðrik Jón
Kristófersson (Yondan Shidoshi-Ho)
Gráður, belti
og stig í Bujinkan Budo Taijutsu
Beltaskipan í
Bujinkan Ninjutsu er nokkuð einföld og lausleg að
mestu leyti, en beltin eru samsvarandi gráðun og
eftirfarandi talningu:
- Hvítt
belti: 10 Kyu og girt byrjendum...
- Gult belti:
9 til 5 Kyu barnabelti, en við hið fimmta þykir
grænt/rautt vel við hæfi og allt að
1sta Kyu. Einstaklingar undir 16 ára aldri geta ekki
fengið svart belti innan Bujinkan...
- Grænt
belti: 9 til 1 Kyu fullorðins-belti karla...
- Rautt belti:
9 til 1 Kyu fullorðins-belti kvenna...
- Svart belti:
1 Dan og allt að 15 Dan samkvæmt núverandi
skipulagi Honbu Dojo í Japan.
Kyu gráður
eru taldar frá 10 og niður í 1, en þá
mun 1 Dan fylgja, svo annað, þriðja, fjórða...
5 Dan og ofar er einungis veitt af Soke sjálfum (ásamt
fáeinum útvöldum Shihan meisturum), en
svo ber við í kjölfar hins ógnvænlega
Godan Sakki-prófs er telst til fullgildis Shidoshi-Kai
kennara innan Bujinkan...
Athugið að
Grímnir Dójó mun fylgja léttúðugri
beltaskipan og gráðun í anda stefnu samtakana
í Japan. Belti og gráður skyldu - þar
með - ekki teljast sem valdasprotar og/eða einkennismerki
er setja menn yfir aðra. Frekar skyldi líta á
gráður sem stig, jafnvel sem viðurkenningar
á frammistöðu og árangri sem veitast
nokkuð persónulega og eftir atvikum. Svart belti
telst td. ekki sem meistaragráða, þvert á
móti; þá telst 1 Dan merki þess
að einstaklingurinn hafi lokið 'grunnþjálfun'
og sé reiðubúinn til frekari æfinga
á hærra stigi.
Í ljósi
ofanverðs mætti þó telja fram nokkur
námsatriði - eða jafnvel einkenni - er Grímnisninjur
skyldu íhuga til gráðunar, en eftirfarandi
listi skyldi reynast sem leiðarljós heldur en nauðsyn
og þ.m. undir hverjum sem einum að haga sínum
málum svo sér hæfi:
10 Kyu - 8 Kyu
- (a): Helstu hugtök og annað slíkt, td.
''Shikin Haramitsu Daikomyo'' etc...
- (b): Lestur á bók og/eða öðru
námsefni eftir Hatsumi (td. kennslu DVD).
- (c): Helstu stöður (Kamae).
- (d): Veltur og annað efnisinnihald 'Taihenjutsu Ukemi
Gata'.
- (e): Beiting grunntækni (Kihon Waza) til varna og
árása, td. helstu hreyfingar og högg/spörk
ásamt gagnhöggum (vörnum).
- (f): Meginform 'Mutodori Kata' (óvopnfærrar
móttöku sverðs).
7 Kyu - 5 Kyu:
- (a): Hoken Juroppo, 16 árásartæki
líkamans og beiting þeirra úr stöðum...
- (b): Helstu köst og líkamskyrkingar, samanber
Nage- og Shime Waza...
- (c): Lestur á seinni bók og/eða öðru
námsefni eftir Hatsumi (td. kennslu DVD).
- (d): Allar grunnstöður ásamt fótaburði
(Sabaki), td. 'Yoko Aruki' hliðarskref...
- (e): Öll atriði 'Taihenjutsu Ukemi Gata'.
- (f): 'Kihon Happo' (8 leiða grunntækni Bujinkan).
- (g): Minnst eitt vopn (td. Hanbo, Bo, Tanto og/eða
Ken).
- (h): Helstu form 'Mutodori Kata'...
4 Kyu - 2 Kyu:
- (a): 'Kihon Happo' (8 leiða grunntækni Bujinkan).
- (b): Öll köst og kyrkingar Nage Waza og Shime
Waza .
- (c): 9 flóttaleiðir (Hajutsu Kyu Ho).
- (d): Lestur á þriðju bók og/eða
öðru námsefni eftir Hatsumi (td. kennslu
DVD).
- (e): Nám á bardagastíl (Ryu Ha):
Gyokko Ryu Kosshi Jutsu.
- (f): Seinna vopn...
- (g): Öll atriði 'Mutodori Kata'.
1 Kyu:
- (a): Öll atriði 'Kihon Happo'.
- (b): Öll atriði 'Hajutsu Kyu Ho'.
- (c): Öll form 'Gyokko Ryu Kosshi Jutsu'.
- (d): Helstu vopn og meginaðferðir, stöður
og beiting.
- (e): Lestur á fjórðu bók og/eða
öðru námsefni eftir Hatsumi (td. kennslu
DVD).
- (f): Sanshin No Kata (form hins réttláta
hjarta).
1 Dan:
- (a): Lestur á helstu bókum og námsefni
Bujinkan ...
- (b): Eitt af 9 Ryu Ha...
- (c): Shinken Kata.
- (d): Vopn (td. Katana, Hanbo eða Bo).
- (e): Full sameining á Kamae, Taihenjutsu og Sabaki...
2 Dan:
- (a): Frekara bóknám ásamt kennslu...
- (b): Eitt af 9 Ryu Ha...
- (c): Vopn (td. Ninjaken, Jutte og/eða Kunai).
- (d): Full sameining á Kamae, Taihenjutsu og Sabaki
með vopnum.
- (e): Aðrar aðferðir, svosem sund, trjáklifur
og annað hæfilegt viðkomandi...
3 Dan:
- (a): Frekara bóknám ásamt kennslu,
jafnvel skriftum af einhverju tagi...
- (b): Eitt af 9 Ryu Ha...
- (c): Vopn (td. Shuriken ásamt skotvopnum af ýmsu
tagi, Tessen, Kusari Fundo etc...).
4 Dan:
- (a): Sérhæft bóknám ásamt
kennslu, jafnvel eigin nemendum...
- (b): Eitt af 9 Ryu Ha...
- (c): Endurvakning grunnatriða...
- (d): Vopn (td. Yari, naginata og Bisento, jafnvel Kusarigama/Kyoketsu
Shoge).
- (e): Ferð til Japans!!!
Athugið
- aftur - að ofanvert er einungis gert til að gefa
sterkari hugmynd hvað sé 'mögulegt' og æskilegt
að nálgast - á hverju stigi þjálfunar
- frekar en hvers sé ætlast af nemanda. Hver
og einn skyldi sjálfum sér samkvæmur og
nálgast Ninjutsu og Bujinkan á þann veg
er þykir skemmtilegastur og mest gefandi í alla
staði.
|